Þar sem ég er ekkert mjög mikið að vesenast þessa dagana þá ætla ég að segja frá ekkert svo voðalega gömlum pirr málum.
Málið er nú það að ég hef ymislegt verið að brasa hérna í íbúðini minni, skellti upp eldhúsinnréttingu, það var nú ekki kimið mál, en ég fékk svo skemmtilega gallaðan eldhúsvask í Ikea, fék skipti honum út og fékk aftur gallaðan vask og þá var mér nú eginlega sagt að ég væri að eiðinleggja vaskin og að þetta gerist svo sjaldan og blablabla, ekkert var nú gert fyrr en ég skrifaði framkvæmdastjóranu bréf og fékk þetta endurgreitt. Svo er nú með þessi rör sem koma frá Ikes að að má ekki losa þau og festa aftur þá piss lekur alltsaman, æðislega gaman. En þessu var nú reddað. En ég ætlaði hinnsvegar að fá svona aðeins meira alvöru dót í Húsasmiðjuni og svo notla var ekkert til neinstaðar þrátt fyrir að mér hafði verið sagt annað. Og við búum á Íslandi þannig að það er ekki um svo magrar verslanir að velja, þannig að ekki er hægt að labba bara út og í næstu, ekki átti Bykó heldur til þá hluti sem mig vantaði. En þetta reddaðist að lokum.
Síðan ætlaði ég að kaupa lista til að setja meðfram borðplötuni og að veggnum, og mér var bent á gólfefnadeildina, meiri bjánarnir, hihi.
Ok svo km að því að við skiptum um glugga hérna á neðri hæðini, ég átti að fá gluggana að utan í september en þeir komu ekki fyrr en í nóvember, það var svo æðislegt að vera úti í mígansi rigningu að rífa gömlu gluggana úr og setja hina í. Þar sem ég pantaði gluggana að utan þá komu þeir full glerjaðir og tilbúnir til ísettningar. Við vorum að bera þessa glugga í grenjandi rigningu og það var ekkert svo gott að halda á þeim. Verða sleipir svona blaurir. Svo komu gallarnir í ljós, einn glugginn hafði dottið í skipinu og var vel rispað og skemmtilegt, og það kom ekki sandblásið gler í baðherbergisglugganum eins og ég pantaði. En ég fékk afslátt af þessu öllu að lokum. Smiðurinn sem hjálpaði okkur sagði mér síðan hvað ég átti að kaupa til að klæða að innan og setja gluggakistu. Leiðin lá í Bykó og þar tekur þessi glæsilega þjónusta sem er auglyst vil, en hún var nú ekki uppá marga fiska. Ekkert var til að því sem við ætluðum að kaupa og ekki í Húsasmiðjuni heldur. Hvað gera menn þá, jú við fengum annað efni sem var svipað og það voru allir eihvað svo fúlir. Ég talaði þá við yfirmannin og hann gékk frá pöntuninni minni. Síðan þegar ég kom að ná í þetta þá voru allir starfsmenninir skælbrosandi. Gaman af þessu, ég var nú ekkert svo allt of hress með þetta allt þá en maður jafnast í skapinu þegar maður er búin að gera allt sem var bras í hringum. Ég efast ekki um það þið hafið gaman af þessu, kanski er ég alger nöldrari, en ég get alveg líka verið skemmtileg. Nóg af nöldri í bili, kemur meira seinna.
föstudagur, mars 17, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Þú ert yndisleg Karitas.
Skrifa ummæli