sunnudagur, september 10, 2006

Þá erum við flutt og erum að koma okkur fyrir

Næyja íbúðin er bara æðislegari en mig minnti, fluttum inn síðasta þriðjudag og erum búin að reyna að koma okkur fyrir síðan þá, Ek var reyndar veikur fyrstu 2 dagana og á föstudaginn fór ég heim úr vinnuni, ógeðslega slöpp. Svaf og hvíldi mig og var bara orðin mun hressari morguninn eftir. Fengum sófasettið úr Þverárselinu en okkur fannst það ekki alveg passa inn hérna þannig ða ég fann mér sófa í gær og Einar er núna ða sækja það. Bergdís litla syss gisti í nótt og náði ég að taka upp úr þó nokkrum kössum í gær dag á meðan hún og Ek léku sér og voru úti. Það hringlaði svo mikið í sófanum sem við ætlum ekki að nota þannig að við fórum nú að skoða hann aðeins ogurðum 4 blyöntum ríkari og alveg 40 kr og svo var þarna líka heillt úr, spurning hvort það sé það sem Gugga var að leita eftir fyrir svoltlu, mig minnir allavega að hún hafi týnt úri. Bergdís og EK eru orðin svoldið pirruð á hvort öðru og það styttist í að ma komi að sækja Bergdísi.
Annars erum við alsæl hérna í nyja húsinu og líðut voðalega vel.

1 ummæli:

Eva sagði...

Til lukku með nýja áfangann :D Ég verð að fara drífa mig í heimsókn :-)