sunnudagur, október 01, 2006

Alveg var þetta magnað

Í gær fórum við í mat til Kalla og Guggu en Kalli varð 65 ára í gær, fengum voða góðan mat og áttum góða stund. Síðan fórum við Krissa á Brodway og vá hvað var troðið af fólki. Við fundum okkur bara góðan stað og vorum þar allan tímann. Þetta var alveg rosalega gaman og ég sé ekki eftir því að hafa farið, svo bíður maður bara eftir að húsbandið komi. En svo er það notla þessi rosa troðningur og fólk var bara kippt í burtu og sumir hálf dauðir, af áfengi eða andteppu veit ég ekki, eflaust sitt lítið af hverju. Svo er það þessu stjörnu dyrkun Íslendinga eins og Krissa sagði það var miklu meiri fagnaðarlæti yfir Delönu en nokkurntíman fyrir honum Magna okkar. Ég verð nú bara að segja að þau stóðu sig rosalega vel bæði tvö og Delana fær nú bara knús frá mér fyrir að hafa verið á þessum hælum allan tíman, vó ég hefði ekki lifað nema 10 min á þessu, hehe.
Jájá svo fórum við Ek bara í stólaleiðangur, urðum að kaupa okkur fleyri stóla til að geta boðið fólki í mat. Og við fáum fyrstu matargestina í kvöld.

1 ummæli:

Eva sagði...

Það er bara nóg að gera hjá þér heyri ég. Þú verður að fara bjóða mér formlega í heimsókn svo ég komi nú einhvern tímann. Er búinn að vera á leiðinni í 2 vikur en alltaf kemur eitthvað upp á og ég bara kemst ekki!