þriðjudagur, desember 19, 2006

Gagagallupp er að gera mig alveg gaga

Já gott fólk eins og nokkur ykkar vitið þá HATA ég gallup, en allavega þá hefur nokkru sinnum verið hringt og ég bað þau bara blíðlega að hringja ekki í mig aftur og ekkert mál. Fékk ekki hringingu í alveg 1 ár eða eithvað. En núna síðasta mánuðinn er bara búið að hringja allt of oft, alltaf milli 19-21 og þá er ég að elda, baða eða svæfa. Þau hafa hringt í heimasímann, gemsann og líka gemsann hans Einars að biðja um mig og ég er ekki einusinni skráð fyrir því númeri. Þvílíkur dónaksapur, og núna í kvöld kl 19.30 var hringt í mig, ég var reyndar að koma úr innkaupum með fullan bíl af matvælum og svona, nenni ekki að versla meira fyrr en í janúar, hehe, gangi mér vel. En allavega þá er ekki gaman að versla í Bónus á þessum tíma, það eru allir stressaðir allstaðar. Og strákurinn hringir og segist vera að hringja frá Gallup og spyr hvort hann megi spyrja mig nokkrar spurningar og ég sagði bara nei. Hann byrjaði eithvað en,en,en og ég sagði honum bara það að ég kæri mig ekki um hringingar og vilji að þau stoppi þessu böggi alltaf hreint og hann hélt áfram að segja en,en,en svo kvaddi ég bara. Ég segi ekki að ég hafi verið neitt kurteis við hann en halló þetta er nógu böggandi venjulega hvað þá 5 dögum fyrir jól, eru ekki allir á fullu þá.
Á morgun ætla ég að fá mér allar þær rauðmerkingar sem ég get fengið. Sem mér finnst reyndar svoldið leiðinlegt því þá er ég að stoppa á margt annað sem ég gæti hafft áhuga á að styrkja og fleira. Ég bað Hive að hringja ekki í mig og þeir hafa látið mig vera í bráðum ár, afhverju gerir ekki bara Gallup það saman, Látiði mig vera, takk.
karitas@pirruð.is

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta er að sjálfsögðu ekki viðunandi! Ég fæ sem betur fer bara hringingar með reglulegu millibili og hefur ekkert verið hringt í desember mánuði svo ég viti til :-)

En mikið skil ég þig vel. Ég hef fengið mér rauðan kross á öll númer en ég veit hinsvegar að gallup má samt sem áður hringja þannig nema þú sért með kross í þjóðskrá en þá ertu alveg látin í friði. Svona er Ísland bara orðið og verðum við stundum bara að sætta okkur við það.

Mikið þætti mér nú samt gaman að lenda stundum í einhverju af því sem þú ert að lenda í og sjá hvernig það færi :p bara svona upp á gamnið :-)