fimmtudagur, maí 17, 2007

ég fæ vexti og vaxtavexti...

Já í gær var ósissuferð með vinnuni og bara mjög gaman, það var byrjað á pizzu og bjór uppí vinnu up kl 15 og svo allir út í rútu kl 16, það var keyrt austur fyrir fjall í Þrastarlund og smá pissustopp, haldið var áfram í átt að Þingvöllum en svo beygt í áttina að Gullfoss og Geysi og stoppað þar sem við fenum öll hjálma með ljósum á. Jupp við vorum að fara ofaní 2000 ára gamlan helli, man nú ekkert hvað hann heitir en þetta var bara fjör, upp og niður hingað og þangað þarna í grjótinu. En það er ekki mikil lógíkk í þessu að bjóða manni í glas og ætlast svo til að maður haldi jafnvagi þarna naðanjarðar. Inní miðjum hellinum var svo sesst niður og allir slökktu ljósin, og vá hvað var svartamyrkur. Boðið var upp á eithvað fljótandi í staupi þegar við komum uppúr aftur. Síðan var keyrt áfram í einhverjar skáabúðir við Úlfljótsvatn, þar var okkur boðið í voðalega fínan mat. Eftir það var brunað í bæinn og mikið sungið í rútuni og þar sem við erum nú fjármálafólk var sungið fjármálalagið, haha.
Svona annars þá fékk ég 8 í bókfærslu, er ekki búin að fá úr hinum 2 fögunum. Mér gengur bara vel í nyju vinnuni og kann bara vel við mig. Þetta er mjög mikil breyting og ekkert spjall eins og það var offt á tímum hjá RSK, nei þarna situr maður í sínum bás og vinnur takk fyrir. Mér bara líst mjög vel á þetta.

1 ummæli:

Eva sagði...

Gaman að heyra hvað allt gengur vel :-) og enn og aftur til lukku með Bókhaldseinkunnina :D vona að ég hafi eitthvað hjálpa og btw. Takk fyrir að drösla mér í klassann! :-D