mánudagur, maí 21, 2007

Hámarkspúls og læti.

Já eins og þið vitið þá er ég að æfa í Laugum og er núna byrjuð í hörku púli hjá honum Víði Þór frænda og eitt í því er nú að æfa þolið og ég barasta fór upp eða upp fyrir hámarkspúls áðan, ef ég hef skilið allt rétt þá á hjartað ekki að þola nema eithvað ákveðið en ég er svo mikill nagli að einhverjar tölur stoppa mig nú ekki. Mont mont, er semsagt bara í mjög fínu formi en er styrðari en spítukall.
Annars er bara fátt að frétta, er aðalega pirruð útí kennarann minn, hún segist hafa sett inn einkunnir 15.5 en ég sé ekkert inni hjá mér og nokkrir aðrir nemendur hafa kvartað útaf því sama. Hún sagðist ætla að láta vefstjóra kíkja á þetta í dag en ekkert hefur gerst og engin skilaboð frá kennara. Ég vil fá mína síðustu einkunn og það strax. Meina ég bað hana að senda mér hana í tpósti en hún svarar mér ekki einusinni.
Í dag byrjuðu 4 sumarstarfsmenn uppí vinnu og þar sem enginn er farinn í frí þá bara stóðu þau bara á meðan það var verið að leta af plássi fyrir þau. En það á víst að smella upp einhverjum borðum, hvar veit ég ekki, en það verður bara þrengra. Gaman að vera ekki nyjust lengur. Kann bara mjög vel við mig þarna og er nú alveg farin að venjast þessum flugvélum og hávaðanum við lendingu og flugtak.
Ætla ekki að hafa þetta lengra að sini en læt vita þegar ég fæ þessa einkunn ef ég fæ hana, hahaha.

1 ummæli:

Eva sagði...

Bara brjáluð :p ég verð að fara koma mér aftur, er að verða geðveik... geðsveiflurnar eru sko komnar á kreik aftur...