sunnudagur, ágúst 19, 2007

Mér tókst að fara alla 10 km-ana



Já í gær var stóri dagurinn, ég mætti í miðbæ Reykjavíkur snemma, 10km hlaupið var skotið af stað kl 10.00 og gékk bara mjög vel. Það var bara svo mikið af fólki að ég kom mér ekkert almennilega af stað fyrr en við Háskólabíó. Var svo þyrst á fyrri drykkjarstöðini að ég tók glasið í einum sopa og fékk hlaupasting, labbaði rösklega þá í smá stund, en svo kom ég mér aftur af stað. Var orðin alveg rosalega þreytt þegar ég var komin 9km, en þraukaði þann síðasta. Versta er að ég er farin að halda að tímatakan mín hafi klikkað, því hún er ekki komin inn á netið, en er komin hjá Bryndísi sem var með mér, ég var rétt á undan henni þannig að ég hef verið ca 67-68 mín á leiðini. Tel það bara nokkuð gott miðað við það að ég er ekki í neinu formi. Ef ég geri þetta aftur ætla ég að vera búin að æfa. Við Einar vorum síðan komin upp í Kjós fyrir kl 17 en Þóra og Guðjón giftu sig þar, reyndar var brúðurin MJÖG sein í kirkjuna, vorum farin að halda að hún væri hætt við. En hún kom að lokum og gékk allt vel, síðan var veislan mjög fín og fjörum, góður matur og kökur. Til hamingju og takk fyrir okkur.

4 ummæli:

Eva sagði...

Innilega til hamingju með árangurinn! Ég sé að tímatakan hjá þér er komin inn :)
1:09:55 (1:08:28) Karitas Bergsdóttir 1983 18 - 39 ára

Karitas Bergsdóttir sagði...

jepp ég er allavega mjög sátt með þetta

harpan sagði...

Ekkert smá dugleg að hlaupa :). ég hefði átt að skella mér ;)
kannski næst ;)
kv HArpan

Nafnlaus sagði...

Frábært hjá þér :)