Mín reynsla af fasteignasölum er ansi misjöfn og ég er svona eginlega bara farin að muna eftir þeim slæmu, kanski af því að það hefur engin verið neitt framúrskarandi.
Ég setti íbúðina mína á sölu í desember og það hefur verið allt í lagi með það, lítið að gerast í desember og janúar og svona aðeins fór að aukast að fólk skopaði í febrúar og ég fékk tilboð og allt saman, verst að bankarnir lána ekki alltaf og því dróst tilboðið til baka, nóg um það.
Auðvitað hef ég verið að líka í hringum mig og skoða nokkrar íbúðir og offt verður maður fyrir vonbrigðum. Ég skoðaði eina æðislega íbúð og var nánast til í að bjóða á staðnum, en hundarnir hjá Fasteignamarkaðinum seldu íbúðina nánast fyrir framan nefið á mér. Ég var búin að segja þeim að ég kæmi kl áhveðið að gera tilboð og þeir ráðlögðu seljanda að taka öðru tilboði sem var 200000 lægra en mitt. Frábær þjónusta er það ekki?? Auðvitað vorum við reið að fá að vita þetta þegar við erum á leiðini á söuna að ganga frá tilboðinu. Svo fór salinn að gera sér upp fullt af afsökunum og ég veit ekki hvað. Nóg um FASEIGNAMARKAÐINN, mæli ekki með honum.
Síðan er það Remax úff, við hentumst af stað að skoða íbúð sem leit svo vel út á netinu og við vorum á því að það væri verið að sína okkur vitlausa íbúð þegar við komum á staðinn. Malið er að gaurinn hjá söluni var búinn að selja þessa íbúð áður og notaði gömlu myndirnar. Það voru slettur á öllum veggjum, beddar hér og þar, áfengisflöskur á fólfunum, brotnar rúður, allir skápar brotnir og handónyt innrétting allstaðar. Ég hringdi í salann daginn eftir og spurði hvað málið væri, þetta var notla ekki íbúðin sem ég var að fara að skoða. Hann kom með þá afsökun að hann vissi ekki fyrirfram að ástandið væri svona á íbúðini, þá fór ég að velta fyrir mér hvernig í ansk gat hann verðmetið hana. En nóg um það ekki REMAX, ekki að virka.
Síðan verð ég að segja ykkur frá FASTEIGNASÖLUnNI ÁS, það var nú vinkona mín og hennar heittelskaði sem kayptu sé íbúð og svo er bara allt í tómu tjóni þarna. Það var farið með um 20 lítra af sparsli á veggina þarna, innrétting sem sögð væri 2ja ára var hætt að framleiða fyrir 5 árum. Þetta er notla alveg frábært, allir vila lenda í svona.
Mágkona mín og maður keyptu sér hús og ég ætla nú ekkert að fara neitt mikið ofaní það g ég veit ekkert um þjónustuna hjá fasteignasöluni en það kom allt of mikið í ljós í þessu húsi og þau eru búin að þurfa að fresta því þvílíkt að flytja, ekki gaman, leki músagangur, þurfti að rífa innréttingar, taka gólfefni, glugga, einangra. Seljendur könnuðust nottla ekki við neitt og ég veit ekki hvað.
Þessi dæmi eru ekki þau einu, ég er alltaf að heyra nyjar og nyjar sögur og reynslur en ég vil bara skrifa um það sem ég þekki af egin raun og líka þau dæmi sem ég veit að eru rétt. Þá er komið nóg tuð í kvöld.
þriðjudagur, mars 14, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Þetta er að sjálfsögðu til háborinnar skammar!
En já Vigga systir lenti í ýmsu með sína sem betur fer fengu þau gluggana á kostnað seljanda og fleira.
Skrifa ummæli