Já þá er helgin yfistaðin og gott betur en það. Fimmtudagur já það er eginlega bara að koma helgi aftur. Allavega þá er ég búin að vera heima í 2 daga, veik og svo var peyjinn veikur. En í dag er það bara vinna vinna vinna. Eva og Gunni komu í mat í gær og ég vona að þeim hafi fundist hann góður. Allavega hélt ég að Eva hafði miskilið og haldið að við værum í kappáti, en hún borðar bara svona hratt, híhí. EK var alveg spinnigal yfir þessu öllu, en hann sofnaði bráðlega, þessi elska.
En allavega þá fékk ég símhringingu áðan og það var maður frá Íslensk almannatengsl, en hann tók eftir greinini minni frægu, hahaha. Og hann er að gera einhverja könnun á innbrotum og vill fá mig á lista hjá sér og þá geta fjölmiðlar haft samband og eithvað svona, og pointið með þessu er að koma þessari umræði fram í fjölmiðlum og meðal almennings. Ef ég hef skilið hann rétt, á sammt eftir að fá frekari upplysingar um þetta allt saman.
Meira var það nú ekki í bili, ég hef ekki haft tíma til að gera neitt sem kemur mér til að tuða og tauta meira.
fimmtudagur, mars 23, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Maturinn var alveg rosalega góður :D Takk fyrir okkur
Skrifa ummæli