Í dag er grein á baksíðu Morgunblaðsinns sem heitir Ætti að láta reyna oftar á bótakröfur þolendanna, jújú ég er mjög ánægð með að þessi litla saklausa grein mín hafi áhrif og að fók hafi tekið eftir henni. Og mér finnst þetta bara nokkuð góð grein í dag þar sem ríkissaksóknari er að tjá sig um málið, ég veit nú ekki hvor það sé lesskilningurinn minn eða að það sé svona illa orðað, en mér finnst ansi skondið að í greinini stendur: "Það er ekki tilaga okkar ákærenda að þannig sé staðið að málum, en vissulega eru fleyri sjónarmið uppi, margir tala um að fangelsi bæti ekki menn, og rétt sé að gefa ungum brotamönnum fleiri tækifæri" segir Bogi. Fleyri tækifæri hvað, til að brjóta af sér eða?!?!?!?!
Meina maður sem er að vinna og það kemur fram í dómnum, er hann ekki bótahæfur, hann fær laun þótt hann egi ekkert. Líka með fangelsi, eru menn ekki látnir vinna þar eða fá allavega einhverjar greiðslur, er ekki hægt að taka það af þeim upp í bætur. Ég er ekki á því að bjóða uppá fleyri tækifæri, það á að refsa þessu fólki, þannig að það finni fyrir því. Ég fann nógu mikið fyrir því að það var brotist inn og vorkenni þessum aumingja ekki neitt.
Það er svo undarlegt hvað ég var hrædd og fann fyrir óþægindum fyrst eftir brotið en svo var bara allt í lagi, en svo er þessi hræðsla að taka sig upp aftur núna. Ætli þessi strákur fari eithvað meira að skipta sér af mér eða er þetta bara hugarástand hjá mér. Skiptir ekki öllu, þetta gengur eflaust yfir á nokkrum dögum.
mánudagur, mars 20, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Já, mér finnst rosa flott að sjá viðbrögðin hjá fólki
Skrifa ummæli