miðvikudagur, mars 29, 2006

Púla púla

Jæja þá er ég byrjuð hjá einkaþjálfara í Laugum, þetta er hörku púl en líka bara gaman. ég hef allavega einhvern að kvetja mig áfram og tala við á meðan æfingu stendur. Svo er maður eithvað að taka mataræðið í gegn, og borða oftar, mér finnst þetta alveg rosalega offt en það venst vonandi.
Ég kíkti nú áðan á hana Petru uppá spítala og hana litlu skvísu, sem er reyndar að verða mánaðargömul. Greyjið Petra þetta er rosalegt hjá henni, stelpan var tekin með keisara og svo er bara vesen með skurðinn og svona bull. Hún var aftur skorin upp í gær og bara endalaus sársauki. Svo var hún að segja mér frá því þegar Heiður Ösp var skírð þarna í kapelluni uppá Lansa. Presturinn var greinilega að flíta sér mikið, þau náðu ekki einusinni að taka skvísuna uppúr vökkuni, hún var bara skírð þarna í þessum fallegu vöggum sem eru þara á spítalanum. Ég verð nú að segja að mér finnst þetta fáranlegt, maður skírir bara hvert barn einusinni og vill hafa það svoldið sérstakt og allavega fá að halda á barninu undir skírn. Ég hefði barasta ekki verið sátt og er smá svona pirruð hennar vegna.
En jæja ég er kanski að nöldra aðeins of mikið núna, stelpan fékk nafn og er bara voða sæt og yndisleg.

1 ummæli:

Eva sagði...

Jamm, svona er lífið stundum. Fer ekki þá leið sem við viljum.