mánudagur, apríl 03, 2006

Núna er sko kominn tími á að tjá sig smá

Án þess að nefna nöfn á fólki, eða staði þá verð ég að lysa smá því sem ég hef orðið vitni af. Mér nánast líður illa eftir að ég sá hvernig ekkju var komið fyrir í kompu á elliheimili, kona sem hefur séð um heimili í mörg ár, fer á elliheimili með maka sínum og þegar makinn fellur frá verður hún að flytja í einstaklingsherbergi, sem ég mundi kalla geymslu. Varla er hægt að hreyfa sig þarna inni og fólk sem er búið að lifa í ansi mörg ár eiga hliti sem eru þeim dyrmætir og vilja að sjálfsögðu hafa hjá sér en plássið er ekki mikið. Og að þurfa að deila klósetti með öðrum, uss, ekki hlakkar mig til að fara á elliheimili, ef ég verð svo gömul. Svo talar fólk um að maður sé bara heppin með að þurfa bara að deila klósetti, mér finnst það nú bara engin heppni. Afhverju þarf fólkið sem er búið að koma okkur í heiminn og ala okkur upp að hírast í kompum á eldri árum? Maður vill nú smá prívat þótt maður sé orðinn gamall.

En nóg um það, ykkur finnst kanski ekkert voða gaman að hlusta á þetta. Við fórum aftur austur í gær að hjálpa til í húsinu hjá Höllu og Örvari, þetta er hörku púl að vinna í svona húsi og ekki vorum við búin að vinna mjög lengi þegar einn stiginn gaf sig og Örvar féll í gólfið, ái 2ja metra fall, ekki gott. Hann bólnaði vel á heldini þegar þau brunuðu í bæinn á slysó. Við Einar unnum áfram, einangruðum og svona á meðan þau voru í burtu. Örvar kom aftur gifsaður og vann einhentur með Einari. Við náðum nú að gera heilann helling þrátt fyrir allt. Evo þegar við leggjum af stað í bæinn er orðið ansi dimmt og ég algerlega orðin sjónlaus. Einar varð að keyra þar sem ég sá ekki veginn. Eithvað er aldurinn að segja til sín, hahaha, nei bara ekki gaman að manneskja eins og ég sem hef alla tíð haft mjög góða sjón og allt í einu bara bamm farið, næturblinda takk fyrir, minns ekki mjög sáttur með það.
Svo í dag var það bara vinna og svo hörku púl í Laugum hjá þjálfaranum mínum, hún kann alveg að láta mig púla, enda borga ég fyrir það. Svo var ég að sína íbúðina áðan og þeim leist nú bara vel á held ég. Kemur í ljós hvort eithvað gerist, en ég ætla að segja þetta gott í bili. Góða nótt allir saman

3 ummæli:

Eva sagði...

Hann er svo óheppinn stundum hann Örvar.

En flott hjá þér að vera dugleg að púla og leyfia fólki að pynta þig aðeins ;)

Nafnlaus sagði...

Já maður þarf stundum á því að halda, er ekki kominn tími á að þú gerir svipað, hmm?

Eva sagði...

Neh... ekki komið að því ennþá :p