Já þá er maður búinn að ferma, og gékk það allt saman vel, þrátt fyrir veikindi hjá fermingarbarninu. Veislan gékk fínt fyrir sig og mjög góðar kökur í boði, og Ísold var alsæl með daginn. Og aldeilis fallegar gjafirnar sem hún fékk.
Já svo er maður nú búinn að skrúbba og skúra heima, og skúraði gluggana að utan og spúlaði svo allt húsið, það er að koma sumarfílíngur í mann. Elías Karl var eins og kálfur ny sloppin úr fjósi að vorui til, hann hljóp og hoppaði um allt, meiri gaurinn.
Svo í gær létum við verða að því sækja um vegabréf fyrir strákana og við kusum bara í leiðini hjá syslumanni, þar sem kosningarnar verða á meðan við erum úti.
Jæja og í dag er nákvæmlega mánuður þar til við förum út, mikið verður gott að komast í burtu af skerinu. Svo stittist í leiðini í för mína til Tromsö og það liggur viða ð mig hlakki meir til að fara þangað en til USA, híhí. Já segiði bara að ég sé skrítin.
Þessa dagana er ég líka ymislegt að sysla við að setja lög inn á ipodinn minn, en ég er að verða svona háþróuð manneskja og ekki bara emð útvarp lengur. Svo er notla gæsavígslan á laugardag og undirbúningur í hringum það.
Svo pantaði ég ferð með Herjólfi um verslunarmannahelgina fyrir okkur fjölskilduna, verður líka gott að komast í helgarferð til eyja í ágúst... ef ekki fyrr. Ætlum allavega að hitta á prestin í sumar og skoða kirkuna með honum, kanki það verði bara í ágúst ef við komumst ekki fyrr. En núna er ég farin að tala í hring og ekkert vit í neinu lengur.
Svo má ekki gleyma að litla skvísan þeirra Krissu og Kidda var skírð Hekla Katrín síðasta sunnudag.
miðvikudagur, apríl 19, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Það er aldeilis! Alveg ótrúlegt hvað þið eruð farin að ferðast mikið! Ég hreinlega dáist að ykkur!
Skrifa ummæli