Í nótt fæddist lítill stór frændi, Helga og Freyr eignuðust sitt fyrsta barn og kom hann með keisara eftir langa bið. Hann var 17 merkur og 54 cm, eflaust myndapiltur, maður fær vonandi að kíkja á hann fljótlega.
Annars er það bara sama sagan, styttist í ferðina út og svo eru notla tvö próf, ég á eftir að brillera í allavega öðru þeirra. Svo brúðkaupið, og ég vona að hann pabbi minn komist í bæinn og geti haft Ek í bústaðinum þá helgina, en það allavega stendur til, það verður þá allavega fyrsta sinn sem EK verði í pössun hjá afa sínum, verður eflaust bara gaman.
Svo er það bara vinnan, maður er svona frekar þreyttur í dag, en nóttin var alveg martröð hjá litla kalli og hélt það vöku fyrir manni.
Svo er verið að plana smá spilakvöld helgina áður en við förum út og þá með mágkonum mínum tvemur og mökum, það verður eflaust bara gaman. Enda flytja Ísól og Snorri út í sumar og fara daginn áður en við komum til landsinns, illa gert ha.
miðvikudagur, apríl 26, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Til Hamingju með litla frændann.
En já, alltaf allt brjálað að gera hjá manni þessa dagana.
Skrifa ummæli