föstudagur, apríl 28, 2006

Viltu kaupa svona dren blóm?

Já maður getur lent í svona skemmtilegum hlutum, eins og að vera "besta vinkona" hinns "fræga" Geirs Ólafs. Muna ekki annars allir eftir DV skemmtuninni í fyrra, skiptir ekki öllu. En við fórum í gær að skoða íbúð og engin annar en hann að sína, úff ég fór nú alveg í kleinu. En þetta var gaman, sérstaklega þegar ég bendi meðfram húsinu og spur hvort það sé komið dren og hann segir þú verður að spurja konuna að því ég kann ekkert á svona blóm. HLÁTUR, hvað vantar margar sellur í manninn. En þegar ég sagði drenlagninr þá flítti hann sér að segja að það væri nú allt komið. Þetta gullkorn mun lifa lengi, og nei við bjóðum ekki í þessa íbúð, leist ekki nógu vel á.

1 ummæli: