Jæja þá er sumarið komið til að vera vonandi, og þá hefst lyfjatímabilið hjá mér. Ég þarf semsagt að nota lyf við ofnæmi sem eru mjög dyr að mér finnst. Eða ég eyðir rúmum 48.000 kr á þessum 3 mánuðum sem ég er verst, fyrir utan sprautur sem ég fæ 2-4 sinnum á þessum tíma og hver sprauta kostar um 5.000 kr. En þegar ég fer að skoða hvernig er að fá lyfjaskirteini og fá niðurgreiðslu af þessu þá NEI ég er ekki í lífshættu, ég veit vel að ég drepist ekki alveg úr þessu en er sammt háð lyfjunum til að halda niðri einkennum á sumrin (ekki þaða ð þetta virki mikið). En ég get verið úti og passað mig.
Ofnæmislæknirinn minn vill auðvitað setja mig í afnæmingu en þar sem það er til ein afnæming vill TR ekki borga niður þessa sem ég þarf, þannig að þetta komstar aðeins 500.000 kr á mánuði og þarf að vera í þessu í 4 ár. Ekkert verður úr þessu, allavega ekki næstu árin.
Bara aðeins að tjá mig um hvað mér finnst þetta fáránlegt.
Svo má notla ekki gleyma að maður var sjónvarpsstjarna í nokkrar mínotur síðasta sunnudag, hahahahaha. Þetta var nú bara ágætis viðtal þrátt fyrir allt þarna í Kompás.
En elskurnar njótiði lífsinns svona í sumari og sól
þriðjudagur, maí 09, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Þú komst bara mjög vel út í Kompás :) og já svona er lífið á Íslandi! Alveg merkilegar þessar tryggingar og fleira.
Skrifa ummæli