miðvikudagur, júní 21, 2006

þreytt og lent á skerinu

Ja siðasti dagurinn var viðburðarrikur, við Helene forum i bæinn og þar keypti ég mér geggjaða Noröna úlpu og hitti Kine og Natalie dóttur hennar. Svo brunuðum við yfir í Tromsdaln og forum a fjellheisen. Upp upp upp á fjall... þar var sko gaman, tok fullt af myndum og labbaði umm og fékk 2-3 mybit. Svo fórum við niður aftur og svo í kirkjugarðinn. Var ekki lengi að finna rétta steininn hja henni elskulegu vinkonu minni. Fór svo í Jekta að hendast i gegnum 2 búðir, kaupa nammið norska góða og svo pakka handa EK. Fórum svo á Yonas að borða tacopizzu, namm namm. Síðan fór ég að hitta Julie á Meieriet, rölti svo aðeins um þar til Helene og Sigrid sóttu mig og við tókum svona síðasta rúntinn um eyjuna. Fengum okkur kvöldgöngu þarna um kvöldið fyrir svefninn. Vaknaði snemma í morgun að kveðja Kari og Kjell, en Vegard kvaddi ég í gær. Tók mig til og svo rúlluðum við út á völl. Á Gardemoen i Oslo hitti ég Siri og það var mjög gaman að hitta hana aftur eftir öll þessi ár, hún átti erfitt með að halda aftur að tárunum allan tímann, en að sjá mig vekur upp þá hugsun um hvernig Eva væri í dag. Við borðuðum saman á Peppes Pizza og spjölluðum heillengi. Síðan fór ég að bíða eftir þessu blessaða flugi,sem seinkaði. Flugið heim var fínt og gott útsyni yfir Færeyjar og suðurlandið hérna, en sky lágu yfir Vestmannaeyjunum mínum fögru. Jæja núna er ég farin að vera væmin. Strákarnir mínir biðu mín á Kefflavík og var voða gott að sjá þá aftur, EK ekkert smá ánægður að fá mömmu heim og spenntur að fá pakka. Fengum okkur að borða Mekong og núna ætla e´g nú að koma mér í háttinn, svo er það vinnan á morgun, úfffff

1 ummæli:

Eva sagði...

Velkomin heim á skerið :D Sé þig vonandi fljótlega!