þriðjudagur, júní 27, 2006
Líklega búin að kaupa
Jæja þá er ég orðin veik og allt virðist vera að ganga upp. Við gerðum tilboð í íbúð í gær og var það samþykkt í dag, núna er bara að byrja að vesenast í lánunum. Bankinn búinn að samþykja mesta af því en þá er bara smá eftir og verðum við að vinna í því á morgun. Ibúðin er allavega glæsileg og ég sé ekkert nema bjart við að flytja þangað. Afhendingin er smá óljós en fáum hana í síðasta lagi 15 september, en við fáum bílskúrinn 20 júlí og getum við sett dótið okkar þangað þá. Annars er ég búin að ná mér í einhverja drullupest og hef engan tíma til þess. Sá sem keypti íbúðina mína kom áðan að skoða útaf einhverjum breytingum sem hann ætlar að gera. Svo kláraði ég erfðarfjáskyrsluna og Þóra fer með hana á morgun og allt barasta að verða í gúddí hérna.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Til Lukku Karitas! Loksins er gæfan þér í hag :-)
Skrifa ummæli