laugardagur, júlí 01, 2006

bara mín heppni

Þegar allt er farið að ganga upp hjá manni og ekki mikið vesen með hlutina. Eins og þið vitið er ég ansi óheppin offt og sérstaklega í viðskiptum, offt á tíðum hafa komið upp vandræði í verslunum, ekki mjög góð reynsla af fasteignasölum og svo framvegis. En við erum búin að festa kaup á íbúð við Hrísateig 16 og allt virðist vera að ganga upp og ekki mikið vesen með það. KB banki lét okkur hafa lán og það á 2 dögum og er ég bara búin að vera ofsalega afslöppuð með þetta allt. Hlutirnir gengu ekki alveg jafn vel þegar ég var að kaupa síðast. En svo er mín byrjuð að pakka á fullu og rífa niður samstæðuna. Raðaði kössum og lausum hillum ofaná, ekki mjög skynsamlegt. En svo sat ég í mestu róleghietum að spjala í símann þegar kassi gaf sig og allat 17 hillurnar hrindu yfir mig og er ég núna fallega blá, rauð, fjólublá og allt það á hægri handlegg og löpp. Fyrir utan verkina þá er þetta ekki sérlega fallegt, en ég hefði mátt vita það að eithvað hlyti að koma uppá. Þetta grær nú áður en ég gifti mig, og hún Þóra vinkona ráðlagði mér að fara ekki út úr húsi í mánuð áður en ég gifti mig, ekki standa uppá stól eða bara einfaldlega ekki gera nokkurn skapaðan hlut.
Í dag gengu Hlega Rún og Freyr í það heilaga og skírðu hann Hlyn sinn litla í leiðini. Við erum ný komin heim úr veisluni og eftir að hafa verið núna í 2 brúðkaupum er maður búinn að læra ymislegt. Gráta úr sé öll tár áður en að stóra deginum kemur, finna sér góða skó sem ekki særa og hægt er að ganga á, panta gott veður og alls ekki slasa sig. Það á nú eftir að bætast slatta við þenna lista en ég hef 1 ár og 6 daga til stefnu.

1 ummæli:

Eva sagði...

Æji elsku Karitas mín! Þú ert svo hrikalega óheppin! Ég held ég taki undir að þú eigir bara að vera innandyra mánuði fyrir brúðkaupið og allir ættu að umgangast þig eins og þú sért MJÖG brothætt gler!

Sveitin var annars æðisleg um helgina...misstir af geggjuðu veðri!