föstudagur, júlí 07, 2006

Styttist í fluttning

Þá er bara allt gengið í gegn og er ég aftur orðin íbúðareigandi. En við afhendum íbúðina mína 1 ágúst og fáum hina í síðasta lagi 15 sept, vonandi fyrr. En við erum allavega komin með íbúð á Sóleyjargötu fyrstu vikuna í ágúst og getum verið þar lengur ef þess er þörf. Kennarasambandið á þetta mikið af herbergjum og íbúðum að við getum verið það á meðan þess er þörf. Annað en stéttafélagið sem ég er í, SFR nei málið er að ég er búsett í Rvk og hef þá ekki rétt á íbúðini sem er hérna í Rvk, en mér er velkomið að fá íbúðina á Akureyri. Skildi ég geta fengið flutning á Skattstofuna á Akureyri á meðan, hahaha.
Svo styttist óðum í Þjóðhátíðina og ofboðslega hlakka ég til að komast í sæluna í Eyjum, aldrei slappar maður betur af en þar. Pabbi ætlar nú sammt að beila á þessu en við fáum nú sammt húsið.
Svo er ég bara að drepast úr ofnæmi og fer aftur í sprautu á mánudaginn.

1 ummæli:

Eva sagði...

Semsagt bara fjör hjá þér :p En hrikalega er tíminn fljótur að líða, bara allt að renna í garð!