Þá styttist í að við tæmum og förum hérðan. Erum búin að fara eina ferð emð dót í bílskúrinn okkar og næsta laugardag fáum við stóran bíl og tæmum hérna. Tíminn líður ofsalega hratt og maður er að átta sig á þessu, maður veltir fyrir sér hvað er hægt að pakka niður og hverju ekki, hvað þurfum við að nota og hvað ekki. Þvílíkt sem við þurfum að setja í sportgírinn í vikuni. Setja fötin í ferðatöskur og sortera hvað við þurfum hérna og þarna og seinna.
Fórum í tívolíið í gærkvöld og þótti Ek það alveg æði sérstaklega klessubílana, Bergdís kom með okkur og ekki þótti honum það verra.
Svo styttist í að almenningur fái álagningaseðlana sína og þá verður allt sett í 100 í vinnuni. Maður ætti kanski að byrgja sig með róandi fyrir næstu vikurnar, hahahaha.
Stefnan er sett á Gullfoss og Geysi í dag, en Unnur og kallinn komu í bæinn í gærkvöldi og koma þau með í smá landkönnun/skoðun. Alltaf jafn gaman að skoða landið aðeins, það er nú ekki offt sem maður fer út fyrir Borgarmörkin.
laugardagur, júlí 22, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Já, var ekki bara gaman? En ég er alveg til í að hjálpa ef ég finn tíma... það er bara allt crazy upp í vinnu eins og er að verða hjá þér ;)
Skrifa ummæli