þriðjudagur, ágúst 01, 2006

Afhending í dag, dadara

Jæja þá er bara komið að því, við tæmdum um helgina og Halla koma ð hjálap mér að þrífa. Allt bara búið að ég afhendi í hádeginu í dag. Síðasta vika fór ansi hratt, vinnan, ræktin og allir þessir flutningar. Það er voða skrítið að koma "heim" eftir vinnuna núna, maður er bara ekkert að gera, og það bara er varla hægt að gera neitt þarna þessi stúdioíbúð er svo lítil að maður bara legst upp í rúm með bók eða situr á hörðum stól að horfa á imban, voða gaman að þessu. En með hverjum degi styttist í að við fáum okkar íbúð afhenda og svo styttist óðum í Þjóðhátíð, jibbi jei. Ég verð þessi þarna með Stish hatinn og kerruna.

2 ummæli:

Eva sagði...

Vá, mér finnst eins og þú hafir hringt í mig í gær og sagt að þú hefðir verið að selja, og núna ertu bara búin að afhenda og færð þína innan skamms!

Nafnlaus sagði...

Where did you find it? Interesting read » » »