Ég er ekki enn búin að afhenda, en gæjinn átti að greiða áhveðna upphæð við afhendingu en svo kom hann bara af fjöllum og átti engan pening. Ég by semsagt í lítilli stúdío íbúð og á tóma íbúð og eins sem ég bíð eftir að fá afhenda og á reyndar bílskúrinn. Þetta er alveg magnað, en ég græði líka á þessu, fæ dráttarvexti frá 1 ágúst. Mér finnst bara svo skrítið að maðurinn hafi semm tilboðið svona upp og koma svo bara af fjöllum, hahaha.
Var svo heppin líka þarna 1 ágúst að við fengum sólarfrí eftir hádegi og RSK bara lokað frá 12, við Einar fengum okkur góðan göngutúr um miðbæinn í góða veðrinu. Bíllinn var á verkstæði eina ferðina enn og við bara labbandi um allt. Fékk svo bílinn í gær eftir að ég var nánast búin að hárreita mig yfir þessum "$(/&"!)$Ö%!(U þarna á verkstæðinu. Þeir voru líka búnir að skítamixa aðeins og loks drusluðust þeir tila ð kaupa stykkið sem vantaði og fékk ég það á fínum afslætti hjá honum bróðir mínum. Annars bara fínt að frétta og Þjóðhátíð framundan, jibbí jei
fimmtudagur, ágúst 03, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli