Við áttum ofsalega skemmtilega helgi í Eyjum, allt gékk voða vel og strákurinn til fyrimyndar. Fannst bara gaman í dalnum og sofnaði svo bara í kerruni sinni. Laugardagskvöldið eftir flugeldasíninguna skellti Einar sér á hnén og bað mín með þessum líka fallega hring. Dags löngu áhveðin en bara vildi gera þetta "rétt". Sunnudagskvöldð var rosalega fínt, gott veður, Árni Jónsen söng peyjan í svefn og svo eftir allt fórum við heimm með Ek og pabbi passaði. Við vorum svo í dalnum til 4. Vöknuðum 8 en þá var EK kominn í gír. Heimsóttum langömmu og svo ömmu og afa, EK og Steinarr hurfu, en þá fóru þeir í labbitúr út í kirkjugarð að heimsækja langalangafa, meiri kjánarnir. Amma djamm eins og hún mamma mín er kölluð kom röltandi heim kl 10, hmm hmm, heldur betur djamm á ömmuni.
Borðuðum kvöldmat snemma og rúlluðum niður á höfn. Svo þegar við vorum 3 bíll á leið inn í dallinn kom maður og saðig, báturinn er fullur þið komist ekki með. Við bókuðum í mai og vorum langt frá því að vera sátt, pabbi kom þarna að ræða við fólkið og það endaði með að við fengum far með bátnum sem fór 1 í nótt, ekkert allt of ánægð með það. Fengum sammt allt endurgreitt, en þegar maður er búin að bóka eithvað og ætlar sér heim á áhveðnum tíma er maður ekkert allt of hress með svona lagað. Fórum þreytt í bátinn og sváfum þar, Svo var keyrt í bæinn og við komin heim um 5, þá tók því ekki að fara að sofa og ég mætti í vinnuna kl 8 og alveg að drepast úr þreytu. Hlakka virkilega til að fara að sofa á eftir.
þriðjudagur, ágúst 08, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Cool blog, interesting information... Keep it UP » »
Skrifa ummæli