miðvikudagur, ágúst 23, 2006

bara ca 2 vikur eftir

Þá erum við aftur komin niður á Sóleyjargötu og er það bara ágætt, herbergið er nokkuð rúmgott og erum við með klósett og sturtu í herberginu. Það notar eginlega engin eldhúsið svo við erum bara nokkuð frjáls með að fara þangað og elda og vera í tölvuni þar og svona. Styttist í skólann og get ég skráð mig eftir 2 daga, verst að það á ekki að kenna síðasta töl áfangan á þessari önn svo ég þarf að áhveða hvað ég tek í staðinn fyrir hann. Svo er ég með algera útlandaflugu, langar svo aftur til Florida, og Tromsö og svo langar mig líka að kíkja til Kanada á Ísól og Snorra, held við byrjum á að safna fyrir brúðkaupinu svo sjáum við til hvar í röðinu hver ferð til útlanda verður, förum allavega til Köben í nóvember og notla Einar til London líka í nóvember. Hann hefur ekki hætt að brosa eftir að hann fékk afmælisgjöfina. Fyrir utan það allt í gúddí og lítið að frétta bara sama gamla, vinna, æfa, ala upp, borða og sofa, helgarnar aðeins meiri afslöppun.

1 ummæli:

Eva sagði...

Hvurslags ferðalag er þetta á ykkur! Ég sit bara föst hérna heima :/