mánudagur, ágúst 28, 2006

Erfitt að vera ég núna

Ég er sko orðin allt of þreytt á öllu núna, alveg að gefast upp á að búa í þessu herbergi, alveg að verða vitlaus á að vera ekki með neina almennilega aðstöði til að elda, þvo þvott, bað eða bara neitt. Búa í ferðatösku og svona rosalega spennandi. Svo er það nú hún Unnur sem er byrjuð í skólanum þarna í Tromsö, mig langar svo mikið að flytja bara út núna og vara vera þar það sem restin er. Fæ alveg undarlega sjúklega mikla heimþrá bara við smá tilhugsun um Tromsö, er meira að segja farin að velta fyrir mér hvað Einar gæti unnið við þarna, ætti kanski bara að byrja að kenna strákonum mínum Norsku núna, hmm hmm. Svo er það árshátíðin hjá rsk, og núna er flugið á 61Þ fyrir okkur 2 og þá ekki með gistingu, en á sama tíma kokstar 72Þ fyrir okkur 3 til Tromsö og þar notla erum við alltaf með gistingu, efast um að ég fái að fara ein aftur út, Einar byst þá bara við því að ég komi ekki aftur heim. Það yrði nú svakalegt, Hæ. ég kem ekki heim sendu strákinn í hraðpósti, hahahahaha. Helgin var alveg fín, spiluðum hjá Kidda og Krissu á föstudagskvöldið, rólegur laugardagur svo matarboð og afmæli í gær, strákaafmæli svakaleg læti. Síðan er hittingur hjá frændsystkinonum næsta laugardag og verður það líklega mjög gaman. Skólinn hefst hjá mér eftir 2-3 vikur og verður það alveg svaka fjör, lesa lesa lesa og læra, reikna líka, veiii. Ætla innmitt að kaupa bækurnar í kvöld. Annars lítið að frétta, bara sama gamla, vinna, æfa, elda, ala, svæfa, þrífa og baða, + + +.

1 ummæli:

Eva sagði...

Úff, Karitas, við verðum að fara gera eitthvað létt og skemmtilegt svo þú sjáir birtuna á Íslandi aftur :)