föstudagur, október 06, 2006

Alveg að koma helgi

Já það er gott að það sé að koma helgi, kláraði skilaverkefni vikunnar í gær þannig að ég er nokkuð laus um helgina, þarf bara að lesa aðeins í sögu. Ætlum líka að leifa Ek og AÞ að leika sé saman eithvað um helgina. Annars er nú fátt að frétta, ætla að reyna að baka brauð um helgina þar að segja ef ég finn allt í uppskriftina(uppskrift frá Noregi). Var reyndar heima í gær alveg að farast í bakinu, hef bara tekið allt of þungt á æfingu á miðvikudaginn. Fer á æfingu á eftir og ætla bara að tala því rólega og teyja vel á bakdraslinu mínu. Maður er orðinn svo gamall og styrður að það ætti nú bara að henda manni, hahaha.
Tók þá ákvörðun í gær að ég ætla að æfa fram að jólum og taka svo pásu á meðan ég verð í kvöldskóla eftir áramót. Þetta tekur bara svo mikinn tíma frá mér, líka þessi skóli. Ef ég gæti nú bara lengt sólahringinn um svona 10 tíma þá væri ég í góðum málum :)

(Ísól var að reyna að ná í þig í gær, en hérna er ekki einhver á leiðini út til Sifjar og co, séns á að senda jólagjafir með?)

1 ummæli:

Eva sagði...

Hehe, vá hvað ég skil þig. En kvöldskóli segiru? Hvar, fá?