Já það er nú ekki mikið að frétta af mér, en í dag gerðist alveg helling, misskemmtilegt.
Allavega þá var ég svo "heppin" að það var keyrt utaní bílinn minn. Akkurat það sem ég þarf ekki á að halda núna. En ekki nóg með það þá ætlaði greinilega stelpan bara ekki að gera neitt í málinu. En ég er svo heppin að vinna með fólki sem fer reglulega út að reykja og voru því vitni að málinu. Gellan var bara þarna að reyna að leggja í stæði frá okkur og það á hún ekkert að vera að gera. En henni tókst að leggja svo vel að hún nuddaði afturendanum á sér svona rækilega vel framaná bílinn minn og rispaði hann vel og tók næstumþví númeraplötuna af. Greyjið Focusinn minn, ég alveg finn til með honum. En já við fléttum upp bílnum og fundum eiganda sem passaði ekki við þessa sem var á honum, en þá er stelpan að vinna í sjoppuni við hliðiná okkur og ég rölti að tala við hana. Hún virtist nú ekki alveg kannast við þetta fyrst en kom og skoðaði bílinn minn. Svo stóð hún bara og spurði hvað hún ætti að gera núna, hihi. Og ef við metum bílinn ætti hún ekki að vera óvön (ætli hún sé búin að keyra á marga án þess að láta vita). Allavega löggan kom og tók skyrslu og allan þann pakkann. Svo tóku þeir númeraplötuna af fyrir mig því ekki er hægt að hafa hana dinglandi.
Ég heyrði þá svo spurja hana afhverju hún hafði ekki látið vita og þá kom líka þetta snilldar svar, Nú ég vissi ekkert hver ætti þennan bíl, hahahaha. Stelpugreyjið, bara búin að vera með próf í 2 mánuði. Ég hálf vorkenni henni, en sammt ekki.
En nóg um það.
Það var síðan hringt í mig frá Öryggismiðstöðini og verið að fara að senda mann til mín að merkja, hmmm, það var merkt þegar kerfið var sett upp. En málið er að ég bað um að það yrði merkt strax þegar ég gékk frá samningnum, en það var aldrei gert og núna voru þau að skoða þá beini frá 5 september, góðann daginn sko.
Skrapp svo aðeins í Kringluna og þar gékk nú bara allt voða vel, þar til einn var nærri því búinn að bakka á mig, búhú. Hvað var ég eginlega í fyrra lífi, og hvað gerði ég svona mikið af mér til að verðskulda þetta.
Jæja ég ætla að láta þetta gott heita í bili.
fimmtudagur, október 12, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Já góðan daginn, það á ekki að þér að ganga elskan....Vonandi áttu allavega góða helgi- endilega láttu mig vita ef þú hefur tíma í skrap ;) Sjáumst allavega á laugardaginn ;)
Það er aldeilis! En takk fyrir símtalið, alltaf gaman að heyra í vinum í vinnunni :D
Skrifa ummæli