sunnudagur, október 15, 2006
Helgin búin
Jæja þá er bara mjög svo skemmtileg helgi að baki, partyið gékk vel í gær og var bara rosalega gaman. Fámennt en góðmennt eins og Harpa sagði. Bjóst reyndar við fleyrum en svona er það bara stundum, hefði nú kanski vilja heyra frá fólkinu sem ætlaði að koma (kanski voru þau bara utan þjónustusvæðis). Allavega þá fannst mér þetta mjög gaman og stóð Guðjón sig vel á gítarnum. Svo er notla alltaf gaman að fá brósa í heimsókn, sem reyndar er breytur í ljósku, hahaha. Dagurinn í dag er búinn að fara í að taka aðeins til, slappa af, taka á móti EK sem var hjá mömmu í nótt. Borðuðum slátur frá Guggu og er það alltaf jafn gott. Svo núna er Einar úti á Keflavík að ná í Þóru sem er að koma heim eftir 2ja mánaðar dvöl í Kanada hjá fjölskylduni sem er sárt saknað. Svo er það bara vinna á morgun og fara að koma bílnum í sprautun. Jibbí eða þannig
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
TAKK KÆRLEGA FYRIR MIG :)
Þetta var æðislegt :)
Hlakka til ínóvmber ;)
Skrifa ummæli