fimmtudagur, október 19, 2006

Svoldið snemmt en fólk spyr!!

Sko brúðkaupið verður 07.07.07 og í Stafkirkjunni á Skansinum í Vestmannaeyjum. Erum ekki alveg búin að fá tímann á hreint en væntanlega um kl 16, síðan verður veisla í sal sem heitir Akóges og verðum við þar með mat og fleira og stemmningu, annars er þetta nú allt á svona byrjunarstigi. En þar sem það er goslokahátíð í vikunni á undan og þetta er mesti ferðamannatíminn þá er kannski best að fólk sem hefur hugsað sér að koma að athuga með gistingu. Það eru mörg gistiheimili í Eyjum en eru líka fljót að fyllast þegar eitthvað er í gangi.
Herjólfur er lengi á leiðinni til Eyja en er ódýrastur og á þessum tíma er nú oftast gott í sjóinn þannig að það ætti ekki að vera mikil sjóveiki.
Við erum alveg tilbúin að aðstoða fólkið okkar að finna sér gistingu og ferð, hafið bara samband ef þið viljið aðstoð.

Engin ummæli: