Hótelið Þórshamar í Eyjum er uppbókað 5-8 júlí 2007 en eithvað er laust á Hótel Eyjar það er enþá laust á gistiheimilum gistiheimili Hamar og Mamma eru með baðherbergi með herbergjum. Svo eru fullt af upplysingum á vefnum. Hægt verður að bóka með herjólki um miðjan janúar og flugið er ég ekki alveg viss með. Svo er auðvitað hægt að tékka á Eyjabústaðir:
Upplýsingar um Eyjabústaði.
Eyjabústaðir er ungt og metnaðarfullt fyrirtæki sem leigir út þrjá glæsilega sumarbústaði og fullkomin veislu og ráðstefnusal í Vestmannaeyjum. Bústaðirnir eru allir hinir glæsilegustu, búnir öllum helstu tækjum og tólum sem þú þarft til að sumafríið þitt sé eftirminnilegt. Í öllum bústöðunum er örbylgjuofn, hljómflutningstæki, sjónvarp, vídeó og að sjálfsögðu heitur pottur.Veislusalurinn er nokkra metra frá efsta bústaðnum og er hann tilvalin undir fundi, ættarmót og veislur af ýmsu tagi. Einnig er hann leigður út sem gisting fyrir hópa (allt að 40 manns) í svefnpokapláss
EyjabústaðirVestmannaeyjumFarsími: 864-2064e-mail: bustadir@internet.is
Gæti verið hentugt fyrir marga saman
Annars bara ekki hika við að hafa samband, við gerum okkar besta í að hjálpa fólkinu að koma sér fyrir. Og NEI mamma ég gifti mig ekki í Reykjavík
þriðjudagur, október 24, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
En að gifta sig í Kanada? Þar er ekkert mál að fá gistingu. Mamma mundi pottþétt mæta ;)
góður, það gæti sammt orðið ódyrari með flugi og öllu, hahaha. Þið meigið sofa á milli ef þið komið :)
Ég skal alveg mæta líka ef það er í Kanads :)
Já, ég veit nú ekki hvort ég væri alveg að fara til Kanada þar sem að ég þyrfti að taka mér lengra frí og svona :p maður fer ekki í helgarferð til Kanada :p
En annars er pakkinn ekkert svo dýr gisting og Herjólfur: uþb 25-4þús, eftir hversu flott fólk vill vera á gistingunni, taka bílinn með og námsmannaafsláttur ;)
En bara Vegas, hahaha. Alveg ógeðslegt stuð held ég. Já annars held ég að ferð til Eyja sé ekkert svo dyr og það er notla bara æðislegt að vera þar. Krossum puttana á gott veður.
Skrifa ummæli