mánudagur, október 30, 2006
Þessi miðbær er nú ekki mjög spennó lengur
Fórum í afmæli til hennar Hörpu krútt á laugardaginn á Pravda niðrí bæ. Nema það að mér finnst nú bærinn ekkert voða spennó lengur, þar sem allt er yfirfullt af útlendingum og ekkert lítið um nauðganir undanfarið. En afmælið var bara mjög gaman og hún Harpa á mjög athygglisverða vini og skemmtilega. Röltum af stað heim um 12 og komum stutt við á Oliver að heilsa upp á Jóa okkar. Þar horfði ég yfir dansgolfið og fullt af stelpum að dansa offtast 3-4 saman og svo einn sveittur útlendingur utaní þeim, alveg finnst mér þetta ekki aðlagandi. Og þeir fatta ekki hintið(Drullaðu þér í burtu). Svo bara röltum við heim, ég get ekki sagt að ég hafi séð mikið af brosandi fólki, ok reyndar var kallt, en allstaðar heirði ég fólk tala og allt annað en íslensku. Svo les maður í blöðunum,og netinu Ok ég er kannski ekki besta manneskjan að dæma um þetta, er orðin hundleið á þessum endalausa innflutningi en útlendingar eru líka fólk, en ættu að hegða sér.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Hæ sæta :)
Og takk kærlega fyrir komuna :).
Já ég á fullt af athyglisverðum vinum hehe :). Þeir eru æði :)
knús Harpan
Skrifa ummæli