Var að tala við hana Ísól mína áðan og við fórum að tala um brúðkaup og hún kom með nokkra punkta sem ég bara var alls ekkert að hugsa um, veislustjórar, taka saman tónlist og svona ymislegt. Sem betur fer eru alveg 8 máðurir í þetta þannig að maður hefur góðann tíma. En kannski maður fari að gera sér góðan tékklista allar ábendingar vel þeggnar.
En annars er bara allt gott að frétta, búin að skila ritgerðini minni, á bara eftir að skila einu verkefni í stæ og svo bara læra næsta mánuðinn er í prófum 4 og 6 des.
Svo í gær fór ég uppá Vöku að skoða litlu krúsídúllurnar, vá hvað þær eru litlar og sætar. Helga og Einar alveg í skyjunum. Hef barasta aldrei séð svona lítil börn.
Svo er það notla óveðrið mikla sem á að koma í nótt, sem þið flest vitið væntanlega. Var úti áðan að taka inn stólana og þeir eru núna í baði, hahaha, nennti ekki með þá út í bílskúr, búin að binda grillið og leggja niður borðið, krossa svo bara puttana og vona að ekkert fjúki. Jæja ég ætla að halda áfram að horfa á mína yndislegu Friends.
sunnudagur, nóvember 05, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Hehe, ég þurfti ekki að færa neitt :p
Skrifa ummæli