Jæja þá er það ákveðið, ég er ða fara að kaupa mér splunku nyja Mözdu 6. Fæ hana afhenda í næstu viku, jeii. Verður sko gott að keyra um á nyjum bíl. Focusinn er ekki alveg búinn að vera að standa sig og hann kom alls ekki vel út úr söluskoðun. En hann dugir alveg til að skipta uppí nyja. Fékk að prófa einn svona áðan og það er notla bara gott að keyra svona nytt dót, rosalega rúmgóður og fínn. Já ég get tuðað endalaust áfram, en svona er þetta.
Annars bara allt gott að frétta, ég er ekki alveg að fíla þennan kulda hérna núna, en það er öruglega stutt í að það fari að rigna aftur.
Svo styttist í öll afmælin og ég bruna svo Einari út á Keflavík nótt til 25 nov, verður sko gaman hjá honum á leiknum.
En já ég ætla að hætta þessu blaðri og koma mér í hátinn.
miðvikudagur, nóvember 08, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Hehe, til lukku með nýja kaggann! Jú, 25. nóvember stendur enn, hinsvegar var ég búin að lofa mér til vinnu fyrir löngu síðan þetta kvöld en ég kem ekki seinna en 23:00 ef það er í lagi?
ekki málið
Skrifa ummæli