laugardagur, nóvember 18, 2006

Afmæli

Jæja þá er ég búin að baka og baka og þrífa og taka til, púff. En hann elsku Elías Karl verður 4 ára á miðvikudaginn og hann Einar menn 40 ára sama dag. En í dag verðum við með smá veislu og EK rosalega spenntur og fékk að opna pakka í morgun frá langömmu og langafa í Eyjum og hann var ekkert smá ánægður að fá svona playmobil dót. Núna er hann bara að leika sér og bíða eftir að ég setji hann í spariföt og beri fram kökurnar, hihi. Nokkrir tímar í það. Svo styttist nú í að ég verði árinu eldri, en það er næsta laugardag, en þá skutla ég líka Einari út á völl, en hann er notla að fara til London og svo á leik Man.Utd-Chelsea næsta sunnudag sem ég gaf honum í afmælisgjöf, verður sko fjör hjá honum er ég viss um.
Já og ég er búin að fá bílinn minn, vá hvað er gott að keyra svona nytt tæki, en að sjá ofaní húddið á þessu, líkist ekki vélum sem ég var að vinna með hérna áður, allt í einhverjum plasthlífum og dóti, huhh. Ek sér nú smá eftir mömmubílnum en er svona að sættast við bláabílinn. Eitt sem er sammt undarlegt, hann sofnar alltaf í bílnum ef við erum að keyra svona um kl 18 eða eftir það. Það gerðist ekki offt á Focus. En það er greinilega gott að sofa í mözdu, því hann sofnaði líka þegar við vorum á bílnum hanns Mása og líka þegar við vorum að prufukeyra mözduna. Alveg merkilegt, þannig að það er gott að sofa í Mözdu, hahaha.
Jæja ég held að ég þurfi aðeins að fínpússa hérna og gefa fólkinu að borða.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Nohh það er veldi...bara að gellast á splúku nýjum bíl :) Til hamingju með soninn og kallinn á miðv!

Eva sagði...

Bara nóg að gerast :) Takk fyrir spjallið í gærkvöldi!

Nafnlaus sagði...

jey hlakka svo til að koma á laugardaginn :)
Hafðu það gott elskan
knús
HArpan