laugardagur, nóvember 25, 2006
Já maður eldist víst
og þá er ég orðin 23 ára og ætla bara að vera það næstu árin, hehe. Í nótt keyrði ég Einari út á völl en hann var að fara til London á að sjá leik Man. Utd. -Chelsea á Old Trafford á morgun, ógeðslega verður gaman hjá honum. Við Ek erum búin að vera nokkuð róleg í dag en hann líka smá svona öfugsnúinn alltaf að fela símana hérna og svo fórum við að kaupa skó á hann og það vildi hann nú alls ekki, meiri kjáninn svo stendur hann fastur á því að pabbi hanns segi þetta og hitt og að hann ráði en ekki ég og hann egi ekkert að vera í London. Púff púff, svo var hann áðan að fara til ömmu sinnar og hún kom hingað með æðislega flottan pakka handa mér, föndur dót föndur dót jeiiii.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Elsku Karítas Innilega til hamingju með afmælið.Klukkan er víst orðin hálf eitt hjá þér og því komin 26. nóv. en hjá okkur er hún bara hálf fimm svo hjá okkur er ennþá afmælisdagurinn þinn;) Ég er enn að ná því hvað tímamismunurinn er mikill. Hringi í þig fljótlega. Afmælisknús frá okkur öllum.
Skrifa ummæli