miðvikudagur, nóvember 29, 2006

Uppbókað

Þá eru öll hótel og gistiheimili uppbókuð í Eyjum, eða svo gott sem. Málið er að það er eitthvað golfmót og það eru svo margir búnir að taka frá herbergi á hótelum en ekki enþá komin nafnalisti þannig að allt getur breyst og líklega munu einhver herbergi losna. Annars er markaðsfulltrúinn í Eyjum að reyna að redda fyrir Kari og Kjell og co gistingu og hún sagði ég er sko ekkert hrædd um að við reddum þessu ekki, Eyjamenn geta verið svo kammó, hehe. Annars eru nú rúmir 8 mánuðir í þetta þannig að það þíðir ekkert að stressa neitt núna, alltaf hægt að tjalda í Herjólfsdal, hahaha.
Vígslan verður kl 16 þennan skemmtilega dag og þeir sem koma með Herjólfi á laugardeginum eru alveg í góðum málum svo framalega sem það verður gott veður, Herjólfur kemur í land um kl 14.45. Við bara pöntum gott veður og að engin verði sjóveikur.

Annars er bara hnikk hnikk að frétta héðan er sko hjá Kírópraktor núna og verð hjá honum 3x viku í 4-6 vikur, takk fyrir pennt. Fór útaf veseni með öxlina mína en vá það er sko ekki bara öxlin, hún er nú kannski bara minnsta vesenið. Ég er meiri gallagripurinn.

Svo er það æðislega ferðin hanns Eianrs um heilgina síðustu, hann skemmti sér alveg rosalega vel í London með Bjössa, Heiðu og Immu og sat svo í lest til Manchester í um 4 tíma og var í góðum gír þar til hann ætlaði að sækja miðann sinn í miðasöluni. Nei það var enginn miði þar, garg. Ferðaþjónusta sem Express verslar við að klúðra einhverju og ég komin með í magann heima og Einar greyjið hlaupandi um allt að hringja og reyna að ná í einhvern. Miðinn reddaðist og hljóp hann upp í stúku á sömu sekúndum og verið var að blása leikinn af stað. Púff.

Það var svo hörku djamm hjá mér á laugardaginn, ég er bara ekki frá þvía ð ég hafi yngst um eitt ár en ekki ellst. Var alveg að tjútta í bænum til 4.30 og kom þá alein heim og fór beinustu leið að sofa. Mætti svo um hádegi daginn eftir að mála piparkökur með Krissu og börnum.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já, takk fyrir kvöldið Karitas :) ég skemmti mér bara mjög vel þrátt fyrir svakalegt minnisleysi eftir að hafa yfirgefið húsið :p

En já, ég þarf að fara athuga hvort herbergi hafi losnað handa mér ;)

Nafnlaus sagði...

Iss... ég kem hér kl 3 að morgni og ekkert nýtt að lesa :p

Nafnlaus sagði...

Iss... ég kem hér kl 3 að morgni og ekkert nýtt að lesa :p

Nafnlaus sagði...

Iss... ég kem hér kl 3 að morgni og ekkert nýtt að lesa :p

Nafnlaus sagði...

Iss... ég kem hér kl 3 að morgni og ekkert nýtt að lesa :p

Nafnlaus sagði...

Ja hér. Bara verið að fara að pússa sig saman. Gaman að því. Henti þér á link hjá mér. Vonadi er þér sama um það. Gaman að heyra frá þér.
Gunnhildur