laugardagur, desember 09, 2006

Prófin búin og jólin alveg að fara að koma

Jæja þá eru prófin búin og ég náði allavega söguni, er ekki búin að fá úr stæ, en ég er nokkuð viss um að ég hafi staðið mig vel þar. Ísold er komin til landsinns og við fáum hana vonandi fljótlega í helgarheimsókn, en hún kíkti hingað aðeins í kvöldmat um daginn. Nóg að gera hjá henni, byrja í nyjum skóla og svona. Við erum bara nokkuð róleg, við Elías Karl fórum áðan að sjá jólalest coca cola keyra framhjá Bústaðarvegi. Núna sitjum við og erum að bíða eftir að þetta gríðarlega skemmtilega jóladagatal byrjar, óvei. Í gær var jólaglögg í vinnuni og var það rosalega gaman, ég notla alveg bláedrú og ógeðslega þreytt, en maður varð víst að taka til þarna. Ég var nú nokkru sinnum spurð hvort ég væri að vinna hjá ræstingarþjónustuni. Alveg greinilegt að fólk viti að ég vinni þarna, hahahaha. Margir alvarlega ölvaðir þannig að þetta er alveg fyrirgefanlegt.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til Hamingju með árangurinn :D Það hefur bara verið fjör hjá þér :)
Ég slappaði bara af í bústað alla helgina :D æðislegt!