föstudagur, desember 29, 2006

Þá er enn eitt árið að klárast

Já jólin eru búin og var mjög notarlegt að vera hiem í 4 daga að slappa af, EK var rosalega spenntur yfir öllum pökkunum og beið bara eftir að fá að opna næsta og næsta. Við fengum öll fallega hluti og erum mjög ánægð, Takk fyrir okkur. Síðan er ég bara búin að vera að vinna síðustu 3 daga en var reyndar í fríi eftir hádegi í dag, skrapp aðeins á sprautuverkstæði og þau eru að panta nyja hurð og bretti á bílinn svo verður hann kallaður inn til þeirra.Skellti mér aðeins upp í Kringlu og ég fann mér skó, jei, ég finn mér nefnilega aldrei skó hvað þá spariskó. Versluðum líka í matinn og allt sem tilheyrir, sóttum orminn í leikskólann og erum núna komin í afslöppun heima. Verður gott að fá 3 daga helgi, svo er bara rétt rúmur mánuður þar til ég verð í London.
Njótiði lífsins það sem eftir er af hátíðunum og gleðilegt ár allir.

Engin ummæli: