Já margt skemmtilegt gerðist árið 2006 og nú er það að líða.
Janúar
Strax 3. janúar bættist við lítill meðlimur í fjölskylduna en hún Helka Katrín fæddist þá.
Var komin með íbúðina á sölu og fólk að byrja að skoða, við vorum líka út um allt að skoða og ég alltaf inná fasteignavefnum. Steinarr, amma Stella og langamma áttu afmæli.
Febrúar
Tókum þá ákvörðun að gifta okkur 070707. Fór á konukvöld Létt 96,7 með Evu (aldrei prófað svoleiðis áður). Elías Karl fékk gat á hausinn. . Hann Jói okkar útskrifaðist úr stjórnmálafræði. Og skólinn byrjaði hjá mér.
Þann 25 febrúar kvaddi Einar afi Einars þennan heim.
Stefanía, Gunni (Evu) og Andrés Blær áttu afmæli.
Mars
Fór ég á námskeið í skattframtölum og netskilum. Byrjaði að skrappa á fullu, (sorry Eva en þú komst fíkninni í mig) Byrjaði hjá einkaþjálfara. 21 mars kom hún Inga Dís í heiminn. Lét rífa úr mér 3 endajaxla. Hjálpaði Höllu og Örvari í húsinu þeirra. Ísold og afi Steinþór áttu afmæli.
Apríl
Ísold kom til landsins. Elías Karl fór í sína fyrstu skoðun hjá tannlækni, hann er með mjög fínar tennur. 13 apríl var Ísold fermd og veisla á Kaffi Reykjavík, Hekla Katrín skírð þann 16. Ísold fór svo aftur til USA og þá var röðin komin að gæsa hana Ísól okkar, svaka fjör það. Og Einar að steggja Snorra viku síðar.
Obba og Kristbjörg áttu afmæli og Hlynur litli kom í heiminn.

Maí
Prófin byrjuðu og gékk mjög vel. Ísól og Snorri genu í það heilaga þann 6. Elías Karl puttabrotnaði viku fyrir brotför til USA. 19. flugum við svo til NY og var það alveg frábær ferð, og svo daginn eftir áfram til Pensacola og sólina og hitann og verslanirnar.
18 maí var liðið ár síðan ég hót störf hjá RSK. Og þann 30 maí flugum við til Orlando og hittum Ísold þar og fengum að kynnast æðislega heiminum í Magic Kingdom. Seldi íbúðina mína.
Ísól, Hlynr Yngvi og Andri Þór áttu afmæli

Júní
Fórum til Alabama og í dýragarð sem er sko ekkert á við Fjölskyldu og húsdyragarðinn, hehe.
Lentum svo á Íslandi snemma morguns 12 júní og fórum heim að hvíla okkur. Fór ég síðan aftur á flug 14 en þá lá leiðin til Tromsö í Noregi og ég þá ein á ferð. Æðisleg ferð sem gleymist seint, hitti marga gamla og góða vini og farmor og mormor og að sjálfsögðu Kar, Kjell, Vegard, Helene og Sigrid. Kom síðan aftur til landsins 20 og vinna strax daginn eftir, úff þvílík keyrsla en æðislegt frí.
Tóti hefði orðið 25 ára, amma Dúna og Eva áttu afmæli og Víðir Snær kom í heiminn þann 25.

Júlí
Helga og Freyr gengu í það heilaga 1. þessarar mánaðar. Festum kaup á íbúð við Hrísateig 16, fegum bílskúrinn afhendan eginlega strax og byrjuðum að flytja dótið okkar þangað, brjálað að gera að pakka og flytja. Fluttum svo í íbúð frá KÍ við Sóleyjargötu.
Hjörtur Einar og pabbi áttu afmæli, og eitt ár í brúðkaupið.
Ágúst
1. ágúst voru 11 ár síðan Eva Victoria drukknaði, blessuð sé minning hennar. Skelltum okkur á Þjóðhátíð í Eyjum og var alveg rosalega gaman. Ísold fór aftur til USA. Afhenti íbúðina mína, með gleði. Gay Pride, berjamó og flutningar og flakk á okkur allan mánuðinn. Svo má ekki gleyma geðveikinni í kringum Magna og Rock Star Supernova.

September
Fengum íbúðina okkar afhenta 3 og fluttum inn 2 dögum seinna. Æðislegt að eiga aftur heimili. Skólinn byrjaði aftur og nóg að gera í öllu.
Afi Gústi, Kalli, Gugga, Már,Þóra, Ísabella Ósk og Óskar Jósúa áttu afmæli
Október
Þann 10. voru 2 ár síðan hann Tóti minn lést. Héldum innflutningspartý. Það var kolgeggjuð stelpa sem keyrði á bílinn minn, urr. Helga og Einar eignuðust 2 yndislegar prinsessur eftir aðeins 28+4 vikna meðgöngu.
Bergdís og Harpa áttu afmæli.
Nóvember
Skoðaði aðeins bíla enda alveg komin með ógeð á bílnum mínum, keypti mér svo bara splunku nýja Möxdu 6, veldi ha, hihi.
Elías Karl varð 4 ára, Einar 40 ára og egó 23 ára, og Einar fór í ógleymanlega afmælisferð á Old Trafford. Kláraði öll mín skilaverkefi og fór að læra fyrir próf.
Desember
Prófin já þau voru nú ekki nema 2 en mér tókst að falla á einu, tek það upp aftur eftir áramót. Nóg að gera fyrir jólin, Ísold flutti til landsins, fórum í jólatréferð, jólasveinarnir komu til byggða og jólin komu og fóru og ég tók varla eftir því. Höfuðverkurinn ágerðist enn meira og fór ég í heilaskönnun 29.des.
Mamma, Birkir, Halla, Þóra vinkona og Skjöldur áttu afmæli.
Já þetta er nú það helsta, og er ég mjög ánægð með viðburðarríkt ár og vona að það næsta beri margt gott í skauti sér.
Gleðilegt ár allir og takk fyrir allt gamalt og gott

2 ummæli:
Gleðilegt nýtt ár Karitas og fjölskylda. Takk fyrir margar góðar stundir á því liðna og sjáumst rosalega hress á nýju ári ;)
Vá mikið að gerast hjá þér þetta árið :) !! Þarf endilega að klára minn annál.... en allavega gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla... Verðum svo að hittast og skrapa sem fyrst
Skrifa ummæli