Já núna eru nokkrir dagar liðnir af árinu 2007 og leggst þetta á arleg nokkuð vel í mig. Auðvitað kom jólasnjórinn síðasta dag jóla, alveg típíst. Verðum að fara að gefa veðurguðunum almennilegt dagatal. Elías Karl er alveg að standa sig eins og hetja í nyjum reglum hérna á heimilinu og ég krossa bara puttana og vina að það haldi áfram. Hann er líka alveg yndislegur og alveg spretta uppúr honum brandarar. Skólinn fer að byrja bráðum og skráði ég mig í norsku, úff, vona bara að það verði ekki sett mjög mikið útá stafsetningu, ekki er ég góð í íslenskir og norksan er nú barasta engu skárri. Kemur allt í ljós, hlyt að rifja þetta upp. Svo er það að taka stærðfræðina aftur og bókfærslu og síðasta tölvufræði áfangan. Núna fram í mai verður bara vinna, nám og fjölskyldan, ekkert fjör fyrr en í mai, nema kanski eitt og eitt alveg spes, en námið gengur fyrir, skal geta þetta. Fæ alveg í magan við að skrifa þetta hérna, úff púff.
Annars er nú bara allt gott að frétta, nema þaða ð löggan var að vara fólk við hérna í hverfinu að það sé mikið um innbrot, já ef einhver ætlar hér inn get ég bara sagt það, ÞÚ RÉTT RÆÐUR. Hef engan húmor fyrir þessu innbrotarpakki, myndu kanski hætta þessu ef þau fá allmennilegan dóm og svo háa sekt að þau verði alla ævi að borga hana.
Jæja núna er þetta komið útí algera vitleysu þannig að það er best að hætta. Góða nótt.
fimmtudagur, janúar 11, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Hehe, já veðurguðirnir eru ekki alveg ákveðnir.... En já haltu áfram að vera svona dugleg með skólann :D getur þetta sko alveg!!!
Þú þarft nú varla að hafa áhyggjur af norskunni, ég þekki allavega engan sem er betri en þú í því tungumáli, (þekki reyndar engan nema þig sem talar norsku). Talandi um veðrið, hér er snjór og frost, hrikalega kalt. Mér var sagt að þetta væri versti vetur hér ever. Það gat nú verið þegar við Íslendingarnir flytjum hingað! Varðandi innbrotin, eruð þið ekki með öryggiskerfi?
Frábært hvað Elías Karl er duglegur, þetta stjörnukerfi greinilega svínvirkar, spurning að taka upp svona hér á heimilinu, veitir oft ekki af! Anyways, á að vera að læra núna en fer alltaf að gera eitthvað annað ;) biðjum að heilsa öllum.
Skrifa ummæli