... já núna er hægt að kaupa miða í herjólf restina af þessu ári. Ég er búin að bóka okkar ferð, þannig að það er frágengið.
Annars er ég bara búin að liggja í einhverri pest sem er ekkert allt of gaman, hundleiðist hérna heima.
Svo var hringt í mig í gær frá verkstæðinu og þeir bara gleymdu að hringja á föstudaginn en bílinn átti að koma til þeirra í gær. Einar fór með hann þegar hann var búinn að vinna, alveg haugskítugan, en ekki við öðru að búast þegar það er hringt með 3 tíma fyrirvara og fólk að vinna. Bílaleigubíll beið á staðnum nema að það var 2 dyra Yaris, hahaha. Venjan er nú sú að fá bíl í svipaðri stærð og maður á sjálfur, alltilagi að fá bara yaris, en hvernig væri nú að fá allavega 4 dyra. Ég sé Einar í anda vera að festa bílstólinn þarna afterí.
Annars er bara mjög fátt að frétta, við Einar erum að fara í smá dekur í Laugum næstu helgi, fengum í innflutningsgjöf frá Höllu og Víði. Svo styttist óðum í yndislega helgarferð til London.
þriðjudagur, janúar 16, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Gott að þið eruð búin að bóka ferð. Það er nú fyrir öllu að þið verðið á staðnum ;)
Hrikalega sniðugt að gefa svona dekur, eitthvað sem maður lætur aldrei sjálfur eftir sér að kaupa en ætti samt að gera! Bið að heilsa öllum
tjaú bella.
Uss, hvurslags lúxus!!!
Tja...vá hvað ég öfunda ykkur að vera fara í svona ferð BARA 2,ekkert smá rómó bara:)
http://barnanet.is/heidurosp áhvað að skella inn slóðinni á Heiði Ösp líka Hehe
Skrifa ummæli