Ó já ég var að sækja elsku bílinn minn á verkstæðið áðan, alveg ný sprautaður og bónaður, ekkert smá flottur svona hreinn og engar beyglur eða rispur. Og vá hvað var gott að keyra hann, núna vil ég sko ekkert skipta honum, skiptir engu þótt han sé sjálfskiptur. Love my car!!!!
Já núna er helgi og við Ísold og Elías Karl eru búin að vera hérna að fá okkur pizzu og gúmmulaði, EK er í baði eins og er og baðherbergið eflaust komið á flot. Við Ísold sitjum hérna og horfum á þetta gríðarlega vinsæla X eithvað, svaka stemmari, sko.
Ég er búin að opna smá brúðkaupsbloggsíðu sem er hérna til hliðar undir 070707, en þar ætlum við að hafa upplysingar til gesta ef við þurfum að koma einhverju á framfari.
Annars bara gott að frétta og svo förum við í nuddið og baðstofuna á morgun, verður sko gott. Get bara ekki beðið
Góða nótt og góða helgi
föstudagur, janúar 19, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Njóttu nú dagsins í dag í botn!!!
Skrifa ummæli