Já þá er helgin búin. Á laugardaginn vorum við mætt í Laugar kl 14 og fórum aðeisn í gufu og svona áður en við fórum í nudd. Alltaf jafn gott að fara í nudd, nema hvað ég var lurkumlamin eftir á. Við vorum svo heillengi í baðstofuni eftir á og fengum okkur að borða. namm namm. Við Þóra sátum svo um kvöldið að skoða brúkaupssíður, hihi. Alltaf jafn mikið fjör.
Svo er skólinn byrjaður og nóg að gera framundan. Féll reyndar niður einn áfánginn sem ég var skráð í og ég er ekkert allt of sátt með það, en lítið við því að gera. Fór í hádeginu í skólann að kaupa eina bók sem fæst bara í skólanum. Svo notla þurfti ég að fara þarna í hádeginu og 20 min í biðröð takk fyrir. Bara hálfur skólinn að kaupa sér sjabbí pizzur þarna á sama stað og verið er að selja bækur, gubb.
Svo á eftir er ég að fara upp í MH að hitta norsku kennarann minn og ná í námsgögnin. Og þá er bara að byrja að læra í kvöld, aðeins 7 verkefni í bókfæslu í þessari viku, fyrir utan að æfa sig í stærðfræði, er reyndar búin með skilaverkefnin. Svo lesa 2 skáldsögur í norsku og gera verkefni, en það kemur allt í ljós á eftir. Verður sko gaman á næstu dögum/vikum, eða bara alveg fram í mai.
mánudagur, janúar 22, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Gangi þér vel með þetta allt saman :D
Skrifa ummæli