þriðjudagur, janúar 23, 2007

Já góða kvöldið, þá er ég komin af stað í norskuni, hitti kennarann minn í gær og hana leist bara mjög vel á norskuna mína. Knski ekki búin að ryðga eins mikið og ég hlélt, en mig vantar alveg fullt af orðum. Þetta kemur allt með kalda vatninu. Fysta verkefnið mitt var að setja upp blogg síðu með kynningu og svo líka kynna fyrri skáldsöguna sem ég á að lesa. Þið sem skiljið norsku megið alveg kíkja á síðuna mína, linkurinn er hér til hliðar.
Annars er alveg brjál að gera í vinnuni og þessir snillingar sem stjórna þarna tóku talvélina úr sambandi og ætla að breyta henni en það á að taka 7-10 daga, takk fyrir. Ég var nú ekki lengi að senda póst til baka um að þetta væri allt of langur tími því við yrðum allar komnar á klepp eftir 3. Hann Ásgeir Heimir bað okkur um að þreuka svo ætlar hann sjálfur, þessi elska að keyra okkur á Klepp og sjá til þess að við fáum fín herbergi þar sem engvir símar eða sjónvörp verða, svo ekkert minnir á síma eða talvél. Æðislegt, ekki satt, svo vel hugsað um mann.
Elías Karl litli krúsinn minn er svo lasinn núna og verð ég heima með hann á morgun, þannig að ég enda kanski ekki á Kleppi fyrr en eftir helgi, hahaha.
Ég er búin að skila mínum fyrstu 2 verkefnum í stærðfærði og er núna að fara að vinna í bókfærsluni, úff. Ég bara man ekki hvernig þetta er gert, einhverjir sjálfboðaliðar þarna úti??? Einhver sem vill hjálpa mér af stað?
Jæja ekki meira í bili, góða nótt.

1 ummæli:

Eva sagði...

Mér lýst bara vel á norska bloggið hjá þér!!! Varðandi bókfærsluna, ef tupperware verður ekki of lengi þá get ég kannski kíkt á það með þér þá eða einhvern tímann á næstunni ;)