sunnudagur, janúar 28, 2007

Sýklalyf og fjör

Já ég man nú ekki hvað klukkan var í morgun/nótt þegar EK kom grátandi uppí en já já þá var minn kominn með í eyrun aftur. Etla sko að panta tíma hjá Friðriki á morgun og setja hann í rör sem allra fyrst aftur. Nenni ekki þessu eyrnaveseni enn og aftur. Já við kíktum til doksa áðan og Ek kominn á sitt lyf og ég fékk líka risavaxnr töflur við þessu endalausa kvefi mínu sem er líklega í ennis og kinnholum líka, jei. Ætli ég verði stoppuð í tollinum með þetta dóp, haha.
Jájá svona er þetta nú, ekki við öðru að búast þegar maður byr hérna á kalda Íslandi.
Annars á ég nú að vera byrjuð að læra, ætla að taka restin af deginum í það, Einar og krakkarnir á leiðini í kaffi og ég fæ frið. Annars er ég búin að vera ofurdugleg um helgina að saga og smíða og baisa hillur hérna inn í hornið í stofuni og kemur þetta alveg mjög vel út, nema að mér tókst að mæla vitlaust út fyrir einni svo við verðum að laga það. jæja þá er ég farin að drekkja mér í bókfærslu og við bara heyrumst.

1 ummæli:

Eva sagði...

Good luck :)