mánudagur, febrúar 05, 2007

Já þá er maður kominn heim í kuldann



Já þá er maður lentur á ískalda skerinu aftur, og það var ekki nema -11 gráður í nótt þegar við vorum að keyra í bæjinn.
Við lögðum semsakt af stað á fimmtudaginn og vorum bara fljót gegnum tollinn og fríhöfnina. Flugmaðurinn var sko ekkert að slóra og tík ansi bratt á loft og svakalega hratt niður aftur og ég fékk svo mikla hellu að ég hélt að hljóðhimnurnar myndu springa, hef bara sjaldan fundið svona sársauka. En við lentum á London Stansted og skelltum okkur í lestina, hittum eitt stykki normann, greinilega eithvað sem tengist því í Stansted Express að ég hitti norðmenn, bara gaman af því. Enduðum svo í Camden Town og röltum af stað heim til Bjössa og Heiðu, en þar var engin, nema einn voðalega sætur kisi. Lékum aðeins við hann, hringdum heim til Íslands til að tékka á hvort þau skötuhjú væru nokkuð með gsm, en nei svo er ekki. Við fórum því aftur af stað og settumst niður á The world´s end, fengum okkur í glas, töluðum við skemmtilegt fólk áður en við lögðum af stað aftur heim til Heiðu og Bjössa og viti menn þau voru ny komin heim úr Ikea og ætluðu svo að vera búin að gera fínt þegar við kæmum, en við vorum degi fyrr á ferðini en þeim minnti. Svo hélt bara þvílíka fjörið áfram og við smíðuðum saman, sófa, stól, borð, hillur og 2 smá borð. Bjössi alger amatör og smíðameistari, honum tókst næstumþví að setja saman stofuborðið.
Föstudagurinn vorum við farin snemma á fætur og röltum um Camden, fórum svo á Tottenham Court Road í nokrar búðir og svo var það Oxford eins og það lagði sig, og enduðum í Hamleys. Vá hvað er til mikið af dóti, en það var ekki til það sem við ætluðum að kaupa handa EK. Fórum á snilldar hamborgarastað, ekkert smá góðir hamborgarar og bara mjög flottur staður, meira að segja skreyttur þau diskana með grænmeti. Fórum síðan á bar áður en við fórum heim að sofa í hausinn á okkur. En Bjössi var alveg brjál hvað Bretar eru miklir dónar, en það finnur maður ekki í USA, en Eianr lenti í smá hremmingum á barnum.
Laugardagur þá vaknaði ég við þessa líka skínandi sól alveg æði, fugla söng og íkornar að leika sér í trjánum, bara æðislegt. Eftir smá morgunmat tók við leiðangur og kíkt í allar búði á leiðini, eða næstumþví. Seinnipartinn fórum við í Harrods og enduðum svo í Covent Garden, þá var mér líka orðið svo aum í mínum tásum og yljum. Endaði með að finna mér skó og það alveg bjargaði mér. Náði líka að kaupa mér kápu og bol og svona gaman. Áttum svo að hitta Heiðu og Bjössa á bar og við fundum þann bar eða héldum það. Fórum að átta okkur að svo væri ekki, fengum okkur þá svona hjólamann til að hjóla með okkur á réttan stað. Fórum svo með strætó til Camden og fórum þar á italskan pizzustað, en á leiðini þangað gengum við fram á mjög svo afmarkað svæði og fullt af löggum. Bjössi spurði eina lögguna hvað hafði gerst og fékk það svar að þarna hafði einhver dáið og löggumaðurinn sagði þetta með bros á för. Ja hérna hér. Fyrir mér líktist þetta meira morðvettvangi heldur en slysi, en hvað veit ég. Vorum svo bara í góðum gír frameftir.
Sunnudagur /brotfarardagur tókum síðasta rúntinn um Camden markaðinn og versluðum smá, en það var nú ekki mikið. Fengum okkur smá mat með gestgjöfum okkar, svona áður en við lögðum af stað út á völl. Það var nú meira ferðalagið, lestin gékk ekki og við fórum með rútu og þar náði ég nú að sofna, ætlaði mér nú að sofa í vélini en nei ekki tókst mér að sofna. Svo var líka seinkun og svo lentum við hérna heima í þessum líka svaka kulda, brrrr. En það var alveg gott að koma heim til litla Ek okkar, en ég segi enn og aftur að mig langar að flytja eithvað út.
Margt annað skemmtilegt gerðist í þessari ferð en ég man bara ekkert í hvaða röð það var.
Og núna sit ég þreytt að svara í símann, úff allt of mikið að gera.

2 ummæli:

Eva sagði...

Það er enginn smá saga á stuttum tíma! Ertu að fara yfirgefa mig?

Eva sagði...

Hey, gaman að sjá myndir með færslunni :D