Já þá erum við Ek bara búin að vera 2 ein í kotinu síðustu 3 dagana, heldur tómlegt. En við erum alveg búin að hafa það gott saman. En þegar hann er eithvað ósáttur við mig fer hann að tala um að ég eigi bara að fara og hann vilji fá pabba sinn. Svo er allt að verða vitlaust uppí vinnu, eða mjög fljótlega. Fékk skemmtilegt símtal í dag þar sem var verið að biðja um eithvað útaf skattadraslinu þarna, haha, eina sem ég velti fyrir mér var þá hvaðað af þessu öllu skattadrasli. Svo er notla undarlegt fólk sem er með bilaðar tölvur og halda að þeir geti bara hringt í tæknimennina okkar til að fá hjálp við það. Og ef maður bendir á að þeir hjálpi með skattatengd efni á vefnum er hreytt í mann að maður sé dónalegur, jájá svona er þetta.
Já svo er það lærdómurinn, það er svoldið meira að gera en ég bjóst við. En ég er alveg að ná yfir þetta, allavega eins og er. Svo ætlar hún Eva mín að hjálpa mér aðiens í næstu viku, með það sem ég ekki skil, maður ætti næstumþví að borga henni kenslugjald en ekki skólanum. Svo líður mér næstumþví eins og ég sé aftur komin í barnaskóla, fékk verkefnaheftið mitt í norsku til baka í gær og allt í svona broskallastimplum, hihi, voða sætt.
Annars fátt að frétta, mæli með að fólk bóki í HERJÓLF sem fyrst sem ætla að fara. Svo vil ég líka benda á veislustjórann okkar, Eva Rún, allt um það á síðuni 070707
fimmtudagur, febrúar 15, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Takk fyrir þetta Karitas :) ég tek auðvitað ekkert gjald fyrir vini ;) híhí en gaman að heyra með norskuna hjá þér!!!
Skrifa ummæli