
Já þá er öskudagurinn á enda og elsku litla ljónið mitt farið að sofa. Litli krúsinn minn fór á öskudagsball í leikskólanum í ljónabúning og málaður í framan. Hann skemmti sér mjög vel í leiskólanum í dag og vill hafa öskudag aftur á morgun.
Ég heyrði aðeins í henni Ísól í dag og er allt gott að frétta af þeim þarna langt í burtu.
Ég talaði líka við Karen hanns Víðis og ætlar hún að mála mig á brúkaupsdaginn, æðislegt að vera komin með svona á hreint. Bara allt að smella saman, sammt margt eftir. Kemur allt með kalda vatninu.
Annars er nú bara allt ágætt að frétta af okkur hérna. Mikið að læra þessa dagana og alveg nóg að gera í vinnuni, en það mun bara aukast þegar nær dregur mánaðarmótum. Netframtölin opna 1. mars.
Svo er ég að fara aftur til læknis á föstudaginn en ég er orðin ansi þreytt á þessu endalausa kvefi, fór á æfingu í 30 min í gær og hélt ég myndi bara hníga niður. Já maður verður að byrja rólega að byggja upp þol aftur.
1 ummæli:
Ekkert smá sætur hann Elías Karl :D búin að kíkja á myndirnar líka!
Þú lætur mig bara vita þegar þig vantar aðstoð með bókfærsluna!
Skrifa ummæli