Já þá er helgin alveg að verða búin, við EK fórum í gær í Fjölskyldu- og húsdyragarðinn með Krissu og börnum. Alveg rosalegt stuð var hjá strákunum að leika sér þarna og það var meira að segja lítill grís sem nartaði í skóinn hanns EK. Stóð nú til að fara að spila við þau gömlu á Álftanesi í gærkvöldi en EK tók hérna smá kast og átti því ekki skilið að fara að leika við frænda sinn. En hann hélt áfram að láta illa og varð því ekkert úr þessu spilakvöldi.
Í dag er ár liðið síðan Einar afi Einars lést og fórum við öll í kirkjugarðinn, það var alveg rosalega kallt og ekki tókst að kveikja kerti, en ég vona að blómin séu enþá á leiðinu. Obba kom svo til okkar í smá kaffi og snúða og ekki löngu seinna komu Kúbu fararnir. Kalli og Gugga komu með svaka bananatertu og sögðu okkur frá Kúbuferðini. Rosalega gaman semsagt. Þrátt fyrir kulda er ekki rigning þannig að ég er búin að vera með þvottin úti í allan dag, ilmar alveg æðislega, rúmfötin sérstaklega. Síðan er búið að skúra allt hátt og lágt.
Ég fór til læknis aftur á föstudaginn og hann léti mig hana annan pensilinskammt og sagði að ég yrði orðin góð á sunnudag. En já máður þarf að taka lækna með fyrirvara, því ég er ekkert skárri, heldur bara komin á byrjunarreit aftur. Leið nú bara eins og ég væri komin með bullandi hita áðan. Það ætti bara að setja lögbann á svona kvef og hósta og flensur. Ætli ríkisstjórnin myndi ráða við svoleiðis lög, haha.
Jæja ekki meira að frétta í bili. Góða nótt og sofiði rótt.
sunnudagur, febrúar 25, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Það er enginn smá dugnaður í minni. Allt þetta á einni helgi, ég hef verið að lesa Fjármál fyrirtækja og Hagnýta tölfræði alla helgina eða frá um 10 - 18 á laugardaginn og 12 - 18:30 í dag...
Heyri vonandi í þér fljótlega!
Skrifa ummæli